Opnunartími
MÁNUDAGUR
9.00 – 16.00
ÞRIÐJUDAGUR
9.00 – 16.00
MIÐVIKUDAGUR
9.00 – 16.00
FIMMTUDAGUR
9.00 – 16.00
FÖSTUDAGUR
9.00 – 16.00
LAUGADAGUR
LOKAÐ
SUNNUDAGUR
LOKAÐ
Alhliða þvottahús með fullkomnum tækjabúnaði
Grand Þvottur er til húsa við Freyjunes 4, 603 Akureyri. Húsnæðið hentar mjög vel og er útbúið fullkomnum tækjabúnaði
Grand Þvottur er alhliða þvottahús og efnalaug sem er búið sérhæfðum tækjabúnaði. Viðskiptavinir okkar eru einstaklingar, fyrirtæki, húsfélög og stofnanir sem geta fengið allan sinn þvott þveginn eða hreinsaðan, hvort sem um er að ræða lín, handklæði, skyrtur, vinnugalla, jakkaföt, kjóla, sængur, teppi, gluggatjöld eða útilegutjöld.
Grand Þvottur er með fullkominn tækjabúnað og fyrirtækið er í stöðugri þróun varðandi nýjar aðferðir í þvotti og hreinsun, starfsfólk með mikla þekkingu og reynslu í meðhöndlun á efnum til að ná hámarksárangri í þvotti og hreinsun fyrir viðskiptavini.
Hágæðaþjónusta á sanngjörnu verði
Grand Þvottur ehf var stofnað 2002, fyrirtækið tók yfir starfsemi þvottahús SAK (Sjúkrahúsið á Akureyri) og sameinaðist fatahreinsunum og þvottahúsum á Akureyri.
Markmiðið var að byggja upp stærðarhagkvæmni og geta boðið upp hágæðaþjónustu á sanngjörnu verði fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Stefna okkar er að bjóða heildarlausnir í þjónustu á Norðurlandi í þvotti og hreinlætisvörum.
Allir viðskiptavinir eru velkomnir.
Hreinlætisvörur og þjónusta
Grand Þvottur er í samstarfi við Tandur ehf með sölu og dreifingu á hreinlætisvörum og þjónustu Tandurs á Norðurlandi.
Leiga
Við leigjum út mottur, dúka, rúmfatnað o.fl. til fyrirtækja, stofnana og húsfélaga.
Allur almennur þvottur af öllum stærðum og gerðum
Við þvoum allan almennan þvott og hreinsum fínni fatnað svo sem jakkaföt, kjóla, dragtir og fleira.
Þvoum og hreinsum einnig allar stærðir af teppum, sængum, koddum, svefnpokum og stærri hlutum sem erfitt er að þvo í heimahúsum.
Hreinsun á fatnaði starfsmanna í fyrirtækjum
Sækjum og sendum þvott til fyrirtækja, stofnana og einstaklinga samkvæmt óskum og þörfum. Sækjum og sendum persónulegan fatnað starfsmanna til fyrirtækja og skilum honum aftur eftir hreinsun.